Gurra Grís - Georg og nýja risaeðlan og aðrar sögur
EAN13
9788728335734
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Gurra Grís
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Gurra Grís - Georg og nýja risaeðlan og aðrar sögur

SAGA Egmont

Gurra Grís

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788728335734
    • Fichier MP3, libre d'utilisation
    2.99
Gurra grís er heldur betur önnum kafin í þessu safni af stuttum sögum um
grísastelpuna vinsælu. Hún og Georg bróðir hennar sá blómum, passa lítið
grísabarn, leika með risaeðlur, búa til ilmvatn og hlusta á sögur fyrir
svefninn. Öll grísafjölskyldan er með í sögunum, ekki aðeins pabbi og mamma,
heldur afi og amma, frænkur og frændur og fleiri líflegar persónur. Sögurnar
af Gurru eru skemmtilegar sögur fyrir alla fjölskylduna. © Hasbro. All rights
reserved. Við lendum í spennandi ævintýrum með Gurru grís, Georg, mömmu,
pabba, Siggu sebrahesti, Kötu kind, Kristjönu kanínu og mörgum fleiri! Förum í
Gurrusirkus, útileiki, körfubolta og bátsferðir og búum okkur undir að hoppa í
drullupollum með uppáhaldsgrísastelpunni okkar! Oink! Oink! Það voru Neville
Astley og Mark Baker sem bjuggu til hinn dásamlega heim með Gurru grís. Síðan
þættirnir voru fyrst sýndir á Nickelodeon sjónvarpsstöðinni árið 2004 hefur
Gurra ferðast til meira en 180 landa. Einnig hafa verið búin til leikföng og
fatnaður með myndum af henni, gefnar út bækur og rúmlega 330 sjónvarpsþættir
framleiddir. Gurra er indæl fjögurra ára grísastelpa sem býr hjá mömmu sinni
og pabba og litla bróður sínum Georg. Gurru finnst gaman að passa Georg litla
bróður sinn og lenda í ævintýrum með honum. Með henni í för er litli, sæti
bangsinn hennar. Auk þess finnst Gurru gaman að leika við bestu vinkonu sína
Kötu kind, heimsækja afa og ömmu og fá heimabakaða súkkulaðiköku og skrifast á
við frönsku pennavinkonuna sína. En skemmtilegast af öllu finnst Gurru að
hoppa í drullupollum og hlæja og skríkja.
S'identifier pour envoyer des commentaires.