Gurra Grís - Afi Kanína fer út í geim og aðrar sögur
EAN13
9788728335727
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Gurra Grís
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Gurra Grís - Afi Kanína fer út í geim og aðrar sögur

SAGA Egmont

Gurra Grís

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788728335727
    • Fichier MP3, libre d'utilisation
    2.99
Í þessu sögusafni um Gurru, grísastelpuna vinsælu, er farið um víðan völl og
lesendur kynnast alls kyns áhugaverðum persónum. Sögurnar gerast allar í og
við leikskóla Gurru og þau búa til kastala, læra um vísindi, fara á safn, læra
um geiminn og kynnast þjóðum heimsins. Ásamt Gurru má finna í sögunum þau frú
Gasellu, Kötu kind, Halla hest, afa Kanínu og marga fleiri. Þetta eru
skemmtilegar sögur sem öll fjölskyldan getur lesið saman. Við lendum í
spennandi ævintýrum með Gurru grís, Georg, mömmu, pabba, Siggu sebrahesti,
Kötu kind, Kristjönu kanínu og mörgum fleiri! Förum í Gurrusirkus, útileiki,
körfubolta og bátsferðir og búum okkur undir að hoppa í drullupollum með
uppáhaldsgrísastelpunni okkar! Oink! Oink! Það voru Neville Astley og Mark
Baker sem bjuggu til hinn dásamlega heim með Gurru grís. Síðan þættirnir voru
fyrst sýndir á Nickelodeon sjónvarpsstöðinni árið 2004 hefur Gurra ferðast til
meira en 180 landa. Einnig hafa verið búin til leikföng og fatnaður með myndum
af henni, gefnar út bækur og rúmlega 330 sjónvarpsþættir framleiddir. Gurra er
indæl fjögurra ára grísastelpa sem býr hjá mömmu sinni og pabba og litla
bróður sínum Georg. Gurru finnst gaman að passa Georg litla bróður sinn og
lenda í ævintýrum með honum. Með henni í för er litli, sæti bangsinn hennar.
Auk þess finnst Gurru gaman að leika við bestu vinkonu sína Kötu kind,
heimsækja afa og ömmu og fá heimabakaða súkkulaðiköku og skrifast á við
frönsku pennavinkonuna sína. En skemmtilegast af öllu finnst Gurru að hoppa í
drullupollum og hlæja og skríkja.
S'identifier pour envoyer des commentaires.