Fátækt
EAN13
9788727175645
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Fátækt

SAGA Egmont

Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788727175645
    • Fichier MP3, libre d'utilisation
    4.99

  • Aide EAN13 : 9788728569221
    • Fichier EPUB, avec Marquage en filigrane
    0.99
Fátækt kom fyrst út árið 1949 í ritsafni Guðrúnar Lárusdóttur.

Hér er fylgst er með hvernig slæm efnahagsstaða verkar á líf einstaklinga og
hvert eðli hennar er. Henni er fylgt allt frá ákvörðunum fátæktarnefndar til
einstaka heimili sem við hana glíma. Fátækt fylgir barnæsku Ellu. Ella er
dóttir einstæðrar móður og þegar sagan hefst eru þær heimilislausar. Þær
kynnast Jóni Árnasyni fátæktarfulltrúa Reykjavíkur og með aðstoð hans byrja
smám saman að koma undir sig fótunum og finna sér betra líf. Höfundur
sögunnar, Guðrún Lárusdóttir, þekkti sérstaklega vel til fátæktar síns samtíma
þar sem hún gegndi hlutverki fátæktarfulltrúa í Reykjavík og barðist þar fyrir
betri kjörum bágstaddra. Hér veitir hún innsýn inn í lífshlaup fátækra barna í
upphafi 20. aldar á Íslandi.

Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938.
Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát
hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt
eftir verkum hennar sem voru mikið lesin.

Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla
áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka.
Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða
hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin
stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði
umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að
gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk
yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera
þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.
S'identifier pour envoyer des commentaires.